Djö ég er ánægð með þetta nýja öppgreid hjá Bloggernum.
Nú er allt mun auðveldara.
Nýja lúkkið mitt um daginn var ekki alveg að taka sig nógu vel út þar sem kommentin fóru í rugl og allt var í hassi.
Þetta er ég ánægð með, nú get ég farið að dunda mér í jólafríinu... sem er þó enn ekki komið.
Ég á núna fjögur próf eftir og það er allt komið í rólegheit ef miða á við seinustu tvær-þrjár vikur.
Áðan var ég að taka strætó heim frá Ártúni. Að þessu sinni átti strætóinn minn að koma 9 mínútur yfir. Ég kom þarna alveg eina mínútu í þá klukkustund sem leið þannig að ég var fremur örugg með tíma. Stóð þarna í köldu strætóskýlinu og beið í örvæntingu eftir strætisvagninum sem virtist ekki vilja láta sjá sig. Klukkan var orðin fimmtán mínútur yfir og ég farin að blána í framan og fingurnir hættir að geta haldið í pokann sem ég bar, og enn lét strætó ekki sjá sig.
Þar sem ég er alveg últra þolinmóð manneskja þá sagði ég mér sjálfri bara að klukkan á símanum mínum væri nokkrum mínútum fljótari en strætóklukkan. Og enn leið tíminn...
Fjórum mínútum síðar sá ég glitta í þann gula, sármóðguð og óþolinmóð. Nú skyldi ég sko láta bílstjórann heyraða!
En þrátt fyrir tíu mínútna seinkun og tuttugu mínútna bið í köldu strætóskýli var ég
of fegin að stíga upp í strætisvagninn til þess að hella mér yfir aumingja strætóbílstjórann.
Hvað er samt málið með að eini strætóinn sem kemur Alltaf of seint sé einmitt sá sem ég þarf að taka?