Hið yngsta fólk þjóðarinnar fyllti salinn. Þetta var ekki stór salur en ég varð alveg steinhissa! Ég var bara einfaldlega búin að gleyma þessu smáa fólki sem er svo stór þáttur í samfélaginu. Þrátt fyrir að sjá þónokkurn fjölda barna á hverjum degi fór það algjörlega framhjá mér að þau færu nokkurn tíma í bíó. En svo rifjaðist upp fyrir mér að bíóferðir manns sjálfs byrjuðu mjög snemma. Man sérstaklega eftir því þegar ég fór í bíó í Álfabakkanum með Bryndísi til að sjá Pocahontas. Jáhh gömlu góðu... salurinn var svoo stór fyrir mér og ég man að starfsfólkið var með lítil vasaljós til að vísa manni á laust sæti. Ekki það að það sé eitthvað óalgengt.. en þetta var rosa upplifun.Veit ekki hvort það sé einhver boðskapur í þessu bloggi annað en að fólk á öllum aldri fari í bíó ?
Ég hef jafnvel stundum farið með ömmu minni. Það er mjög ánægjulegt að sú gamla hafi enn áhuga á því. Fórum saman á Mr Bean á sínum tíma og við gjörsamlega töpuðum okkur úr hlátri. Vil bara þakka fyrir að eiga völ á því vegna þess að þetta er eitthvað sem maður ætti ekki að missa af!
..Jú boðskapurinn í þessu bloggi er:
Maður getur alveg farið með ömmu sinni í bíó. Það er hvorki önkúl né leiðinlegt. Hvet því alla sem eiga kost á því að bjóða ömmu eða afa í bíó einn daginn.
*Smá aukapælingar á meðan sköpun bloggsins átti sér stað*
- Ég veit ekki hvort fólk almennt fari í bíó með ömmum sínum yfir ævina.
- Ég veit ekki hvort fólk fari almennt í bíó með ömmum sínum yfir ævina.
- Ég veit ekki hvort að fólk fari í bíó almennt með ömmum sínum
- Ég veit ekki hvort að fólk fari í bíó með ömmum sínum yfir ævina almennt.
- Ég veit ekki hvort að fólk fari í bíó með ömmum sínum almennt yfir ævina.



















